Forsíða

Tilkynningar

Óskilamunir

Nokkuð ber á því að persónulegar eigur notenda orlofshúsa LL verða eftir í húsunum, að lokinni dvöl í þeim.

Þannig eru nú, á skrifstofu LL, tvenn sjóngleraugu, önnur karlmanns og hin kvenmanns.

Eigendur þessara gleraugna geta vitjað þeirra á skrifstofu LL.

 
_S9C0892.JPG
Stjórn LL mun funda með dómsmálaráðherra Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Snorri Magnússon   
Laugardagur, 04 September 2010 21:14

Eitt fyrsta formlega embættisverk nýs dómsmálaráðherra, Ögmundar Jónassonar, hefur verið að óska eftir því við formann Landssambands lögreglumanna (LL) að funda með stjórn LL. 

Allt kapp verður lagt á að hægt verði að koma á slíkum fundi við fyrstu hentugleika.

 
"Nýr" framkvæmdastjóri LL Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Snorri Magnússon   
Föstudagur, 03 September 2010 10:58

Steinar Adolfsson, sem var framkvæmdastjóri LL um tíma hefur flutt aftur til landsins frá Noregi og hafið störf sem framkvæmdastjóri LL að nýju.

Lesa meira...
 
Verkfall slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Snorri Magnússon   
Föstudagur, 06 Ágúst 2010 11:35

Annað verkfall Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst kl. 08:00 í morgun, föstudaginn 6. ágúst.  Árangurslítill fundur í kjaradeilunni stóð fram undir kl. 23:00 í gærkvöldi.

Lesa meira...
 
Þriðja verkfallið hafið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Snorri Magnússon   
Föstudagur, 13 Ágúst 2010 12:37

Þriðja verkfall Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hófst kl. 08:00 í morgun (föstudaginn 13. ágúst) eftir að samningaviðræðum þeirra við launanefnd sveitarfélaga lauk á sjötta tímanum.  Við verkfallsaðgerðirnar nú bætist yfirvinnubann, sem hefur víðtækari áhrif en verkföllin tvö sem á undan eru gengin.

Lesa meira...
 
Stefnir í annað verkfall slökkvilliðs- og sjúkraflutningamanna? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Snorri Magnússon   
Fimmtudagur, 05 Ágúst 2010 16:35

Í dag, fimmtudaginn 5. ágúst kl. 13:30, hófst í húsnæði Ríkissáttasemjara fundur í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaga.  Ekkert hefur verið fundað í deilunni frá því fyrir síðasta verkfall eða í rúmar tvær vikur.

Lesa meira...
 
«ByrjaFyrra12345678910NæstaEndir»

Síða 1 af 48
 

Landssamband lögreglumanna (LL) er stéttarfélag íslenskra lögreglumanna, starfssvæði er allt landið og hefur LL samningsrétt fyrir félaga sína.

Skrifstofa LL er að Grettisgötu 89 (BSRB húsinu).    Sími: 525-8360    Fax: 525-8369    Netfang: ll@bsrb.is

Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 8 -  16.  Opnunartíminn getur verið breytilegur á sumrin, vegna sumarleyfa.